FISK Seafood

Ábyrgar fiskveiðar
síðan 1955.

Fréttir

Arnar HU 1 á landleið

Arnar HU 1 er væntanlegur í land við Sauðárkrókshöfn á morgun. Í skipinu eru um 617 tonn af afla, mest af ufsa eða um 290 tonn. Þá eru um 156 tonn af gullkarfa, um 92 tonn af þorski og um

Lesa meira

Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 103 tonna afla, aðallega þorski eða um um 82 tonn af honum og næst mest af ufsa, eða um 8 tonn. “Við byrjuðum í brælu og engum fiski

Lesa meira

landvinnsla

Á Sauðárkróki er rekin fullkomin bolfiskvinnsla, frysting og þurrkun. Helstu afurðir eru þorskur og ufsi sem fara á markað í Suður-Evrópu. Unnið er samkvæmt ströngustu gæðakröfum og stöðlum og hefur vinnslan alþjóðlega IFS vottun.

Sjófrysting

Frystitogari fyrirtækisins, Arnar HU-1, veiðir og vinnur þorsk, karfa, ýsu og ufsa auk fleiri tegunda sem veiðast í minna mæli. Vinnsla togarans fylgir gæðastefnu sem byggir á áhættuþáttagreiningu (HACCP) þar sem öryggi og gæði framleiðslunnar eru í fyrirrúmi.

Saltfiskverkun

Í Grundarfirði rekur fyrirtækið fullkomna saltfiskverkun byggða á traustum grunni. Þar eru framleiddar saltaðar gæðaafurðir fyrir markaði í Suður-Evrópu. Framleiðslan fer fram undir vörumerki Soffaníasar Cecilssonar.

Frá veiðum til verðmæta

FISK Seafood er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum Íslands með yfir 70 ára reynslu af veiðum, vinnslu og sölu sjávarafurða.

Við leggjum áherslu á gæði, sjálfbærni og ábyrga nýtingu auðlinda hafsins.

70+ ár

Áratugareynsla af öllum hliðum sjávarútvegs.

Ábyrg nýting auðlinda

Við nýtum hráefnið sem best og drögum markvisst úr sóun.

Jafnlaunavottun

Við höfum uppfyllt skilyrði jafnlaunavottunar síðan 2019.

Gæði og rekjanleiki

Vottuð gæðakerfi tryggja öryggi og rekanleika afurða.

Sjálfbærni

Við leggjum áherslu á ábyrgar fiskveiðar, sjálfbæra nýtingu auðlinda og stöðugar umbætur í allri starfsemi.

Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum og stuðla að því að auðlindir hafsins standi undir verðmætasköpun til framtíðar.