Slysavarnir sjómanna
VÍS og FISK-Seafood á Sauðarkróki hófu formlegt forvarnarsamstarf í vor um að efla öryggi hjá sjómönnum fyrirtækisins. Markmiðið með þessu samstarfi er að koma á öryggismenningu í skipum fyrirtækisins, framkvæma áhættumat um borð, taka upp atvikaskráningu (öll næstum því, minniháttar og stærri slys og tjón séu skráð), rannsaka orsakir slysa og tjóna og stuðla að úrbótum i kjölfarið og auka þannig forvarnir og öryggi um borð í skipunum. Í haust var slysavarnarskóli sjómanna fenginn til að taka þátt í þessu verkefni og mun hann leggja til sérþekkingu sína á öryggi sjómanna ásamt ákveðnu námsefni.
Ákveðið var að byrja á þessu verkefni um borð í einu af skipunum og varð frystitogarinn Málmey fyrir valinu. Kynning var haldin í síðustu viku með áhöfn skipsins áður en það lagði úr höfn. Þar kynnti Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri forvarnarverkefnið og sýn FISK-Seafood í öryggismálum sjómanna. Sömuleiðis hélt Gísli Níls Einarsson forvarnarfulltrúi VÍS og Hilmar Snorrason skólastjóri slysavarnarskóla sjómanna fyrirlestur um fjölda sjómannaslysa hjá FISK síðustu 7 árin, orsök þeirra, tíðni, afleiðingar og kostnað. Einnig var fjallað um mikilvægi atvikskráningar, áhættumats og öryggishugsun og hegðun á meðal sjómanna. Með þessu verkefni eru samstarfsaðilar ásamt skipstjórnendum og áhöfn Málmeyjar að sýna mikið frumkvæðni í öryggismálum sjómanna.