Fréttir | 24.09.2009
3 X Jón Eðvald
Í dag var haldinn á Sauðárkróki stjórnarfundur í Hólmadrangi ehf. en fyrirtækið er í eigu Kaupfélags Steingrímsfjarðar og FISK Seafood hf. sem eiga 50% hvort félag. Svo skemmtilega vill til að allir stjórnarmenn í Hólmadrangi, þrír að tölu, heita Jón Eðvald og þótti rétt að smella mynd af þeim nöfnum í upphafi fundar.
á myndinni eru frá talið frá vinstri:
Jón Eðvald Friðriksson framkv.stjóri FISK Seafood hf. Jón Eðvald Alfreðsson fv. kaupfélagsstjóri Kaupfélags Steingrímsfjarðar og Jón Eðvald Halldórsson núverandi kaupfélagsstjóri Kaupfélags Steingrímsfjarðar.