Fréttir | 02.09.2009
Grettissund fyrst kvenna
Sarah Jane Emily Caird starfsmaður FISK varð fyrst kvenna til að synda Grettissund þann 15.ágúst 2009 og synti á tímanum 3 klst.og 11 mínútum.
Í tilefni af þessu glæsilega afreki færði Jón E Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. Söru viðurkenningarskjal frá fyrirtækinu og samstarfsfólki en á skjalinu kemur m.a. fram kafli úr Grettissögu þar sem sundi Grettis árið 1030 er lýst.