Fréttir | 01.09.2009
FISK fallegasta fyrirtækið 2009.
Umhverfisverðlaun Skagafjarðar voru veitt 29.ágúst s.l.Það er Sveitarfélagið Skagafjörður og Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar sem standa að verðlaununum en veitt eru verðlaun í sjö flokkum. FISK Seafood hlaut verðlaunin í flokknum fallegast fyrirtækið og veitti Jón E Friðriksson framkvæmdastjóri viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn í húsi frítímans.
á myndinni eru Jón Eðvald og Tómas Árdal stoltir við verðlaunaskjöldinn.
sjá nánari fréttir af verðlaunaafhendingunni á www.feykir.is