Hafa samband
Fréttir | 25.02.2009

Öskudagur

Stöðugur straumur af allskonar furðuverum hefur verið á skrifstofur FISK í morgun, nokkrir koma vopnaðir og vígalegir en aðrir prúðir og puntaðir. Nokkrar þjóðþekktar persónur hafa mætt á staðinn t.d. Geir H Haarde auk bæði mótmælenda og lögregluþjóna, einnig kom hópur alþingismanna sem neitaði að segja af sér. Allt hefur þó farið friðsamlega fram og samkomulag náðst um að gestirnir syngju lag gegn ,,púkanammi,,

Vinsælasta lagið í ár virðist vera ,,Krummi svaf í klettagjá,, en einnig hefur ABBA, Páll Óskar og Ingó komið við sögu.