Arnar HU 1
Arnar, 2ja þilfara frystitogari, var smíðaður árið 1986 í Tomrefjord, Noregi. Áður en Arnar kom til Íslands var hann gerður út undir nöfnunum Neptun og Andreas í Hvannasund. Arnar var keyptur um áramótin 1995-1996 frá Rússlandi og hefur verið gerður út af Skagstrendingi síðan 15. janúar 1996.